Brikk er fjölskyldufyrirtæki, stofnað af þremur fjölskyldum sumarið 2017. Við opnuðum dyrnar fyrst þann 16. júní 2017 á Norðurbakka í Hafnarfirði. Nú erum við einnig með útibú á Kársnesi í Kópavogi, á Háteigsvegi í Reykjavík og á Dalvegi í Kópavogi.
Við sérhæfum okkur í súrdeigsbakstri og bakkelsi úr hágæða hráefni ásamt kökum, salötum, súpum, samlokum og allskyns öðrum veitingum.